Sólóplatan Japl
ekki grunaði mig það á unglingsárum mínum, að ég ætti eftir að gefa út sólóplötu, hvað þá með sjálfum mér.
Ég hef alltaf verið hljómsveitargaur og fórnað mér fyrir bandið í hvívetna. En lengi er von á einum, og þegar enn ein Sálarpásan var í uppsiglingu í fyrrahaust, ákvað ég að skoða þá hugmynd að gera einherjaplötu.
því fyrst og fremst er ég lagasmiður sem verð að fá að semja og flytja eigin músik reglulega (enginn flýr sín örlög). Ég samdi flest lögin á "Japl" í fyrra sumar en byrjaði ekki fyrr en í okt. að vinna skipulega í plötunni.
þú getur gert sólóplötu á margvíslegan hátt; fengið popplandsliðið til að syngja og spila með þér og selt út á stjörnurykið, eða gert þetta sjálfur og taka á honum stóra þínum.
Ég ákvað að reyna seinni kostinn, enda alltaf vanur að fara erfiðustu leiðina. Ég vildi hafa þetta persónulegt og hrátt -þá sérstaklega textana, sem fjalla um líf mitt og viðhorf.
Textar hafa fram til þessa verið hálfgerð kvöð fyrir mig að gera og ekki bætir úr skák að ég hef starfað í mörg ár með tveimur frábærum skáldum, þeim Stebba og Frissa, þannig að ekki hefur verið mikil þörf á mínum kröftum.
En í þetta skiptið fékk ég mikið út úr því að gera textana. Ég ákvað að láta formið víkja fyrir efninu ef svo bar undir og segja það sem mér lá á hjarta og langaði til að syngja um.
Eiður í Skífunni ákvað að taka sénsinn og gefa plötuna út og fékk ég frábæra stráka til að spila með mér, þá Jakop Smára Magnússon á bassa og Birgir Nielsen á trommur.
Fyrir utan að vera frábærir tónlistarmenn, þá voru þeir svo jákvæðir og áhugasamir að maður gleymdi stundum að vera stressaður yfir öllu saman. Helgi Björnsson (.eða Holy B) syngur svo með mér dúett á plötunni, lagið "Vin í raun.".
Helgi er góður félagi og frábær söngvari, og ekki síst hefur hann þann fágæta eiginleika að geta sungið einlægan texta og látið hann hljóma töff. Tónlistin er melódískt gítar popp/rokk -einfalt og hrátt og vonandi skemmtilegt. Ég tók plötuna upp á stuttum tíma og þar reyndi mest á upptökumanninn, Adda 800.
Hann náði því ótrúlega að fiska út úr mér þokkalegum söng, þannig að ég get ennþá hlustað á plötuna í dag án þess að fá kjánahroll. Hellingur af öðru fólki kom við sögu og hvöttu mig áfram og vil ég þakka þeim heilshugar.
Ég er drullu ánægður með plötuna, og kannski er þetta upphafið að einhverju nýju (maður spyr sig?) -mig er þegar farið að klæja í fingurna að reyna að gera betur næst, en það fer auðvitað eftir viðtökunum þarna úti.
Því maður er sífellt að taka úr sér hjartað og ota því framan í fólk, -spyrjandi: "hvernig finnst þér?"
Tónlist af nýja hljómdisknum JAPL
Lög.textar,útsetningar og upptökustjórn: GJ
Gítar,söngur og hljómborð: GJ
Bassi: Jakob Smári Magnússon
Trommur: Birgir Níelsen
Sérlegur gestasöngvari í "Vin í raun":
Helgi Björnsson
Tekið upp í Grjótnámunni og Sýrlandi,Jan.Feb.Mars 2004
Upptökumenn: Addi 800,Hrannar Ingimarsson og Haffi Tempó | Hljóðblöndun: Addi 800 | Hljómjöfnun: Bjarni Bragi Kjartansson | Hönnun á plötuumslagi: Add Inc. | Ljósmyndir: Jónatan Grétarsson