Lagatextar Fuður...


Eins og lauf (í sterkum vindi)

Færibandið linnulaust
skapar nýja þörf.
Greiða leið í tómleikann
týnast augun stjörf.
Mammon’ ofurseld.
Neyslan niðurnegld.
Öll sú ánægja að eignast hlut er gengisfelld.

Alveg ótrúlegt, vita fáránlegt.
Eins og lauf (í sterkum vindi)
Yfirgengilegt, jafnvel lygilegt.
Eins og lauf (í sterkum vindi)
þeytumst við.

Kalda stríðið búið er
samt er kvíði í mér.
Allir hópar hafa guð
í þjónustu hjá sér,
og þeim Knoll og Tott
fannst það voða flott
að vera staðfastir í runnanum með heimskuglott.

Alveg ótrúlegt, vita fáránlegt.
Eins og lauf (í sterkum vindi)
Yfirgengilegt, jafnvel lygilegt.
Eins og lauf (í sterkum vindi)
þeytumst við.

Mér líkar ekki gagnrýni
og trúi ekki á hrós.
Kjánahrollinn deyfi ég
með muldri undir rós.
Slekk á sjálfum mér,
fer úr karakter.
Allir þykjast vita betur hvernig líf mitt er.

Eins og lauf...
Eins og lauf (í sterkum vindi)
Alveg ótrúlegt, vita fáránlegt.
Eins og lauf (í sterkum vindi)
Yfirgengilegt, jafnvel lygilegt.
Eins og lauf (í sterkum vindi)
þeytumst við.







E-mail: gummijonss@simnet.is



Til baka



Næstu tónleikar

  Auglýst síðar...


.