Lagatextar Fuður...


Ég um þig frá mér til þín (3. hluti)

Jonni situr yfirgefinn, dópaður
á stól í tómri íbúð, yfirbugaður.
Hann athugar með hnútinn einu sinni enn
er minningarnar birtast ein og ein í senn;
hlátur Mæju, brosið blítt,
nýfætt barnið blómum prýtt.
Hvernig gat hann endað svona auðnulaus?

Því ég um þig frá mér til þín
var eina sanna gleðin mín.
Jonni hristir slenið frá,
stendur upp og hlustar á
mávagargið fyrir ofan Óðinstorg.

Mæja ekur dóttur sinni að Smáralind.
Lífið loksins kyrrlátt eins og stillimynd.
En allt í einu læðist illur grunur að
og gömul minning tekur yfir stund og stað.
Augu Jonna, ástin blind.
Hjörtun mæðast, drýgja synd.
Skyndilega snýr hún við og leitar hans.

Því ég um þig frá mér til þín
var eina sanna gleðin mín.
Rauðu ljósin gefa grið,
Mæja heyrir mávaklið,
grátandi hún bankar hægt á hurðina.

Því ég um þig frá mér til þín
var eina sanna gleðin mín.
Mikil blessun væri það
að vita ekk’ en skilja samt.
Mávahópur flýgur upp við dimmumót.

...ég um þig frá mér til þín...







E-mail: gummijonss@simnet.is



Til baka



Næstu tónleikar

  Auglýst síðar...


.