Lagatextar Fuður...
Leyfðu mér
Í gær þú hafðir níu líf
en týndir þeim með stíl,
nú stendurðu á nálum.
Í dag er slóðin orðin köld
og beygur tekur völd,
hann þekur þína sál.
En ég er hér...
Leyfðu mér að reisa þig á ný.
Leyfðu mér að bægja frá þessu skýi
– þrumugnýrinn, heyrist aldrei meir.
Þó ég ryðjist inn til þín
og æpi orðin brýn,
þú fyrirgefur mér.
Það er í svartnættinu ljós
þótt stormi slegin rós
rétti varla úr sér.
Og ég er hér... sem betur fer...
Leyfðu mér að reisa þig á ný.
Leyfðu mér að bægja frá þessu skýi
– þrumugný.
Leyfðu mér að reisa þig á rönd.
Leyfðu mér að losa um þessi bönd
– hjálparhönd, hún leysir hnútinn fljótt.
Endrum og sinnum þurfa allir
á hjálp að halda þegar þrautir þjá
Stoltið flækist fyrir þér.
Sinnulaus en þver
þú sekkur brátt í kaf.
En ég er hér...
Leyfðu mér að reisa þig á ný.
Leyfðu mér að bægja frá þessu skýi
– þrumugný.
Leyfðu mér að reisa þig á rönd.
Leyfðu mér að losa um þessi bönd
– hjálparhönd, hún leysir hnútinn fljótt.
Endrum og sinnum þurfa allir
á hjálp að halda þegar þrautir þjá
E-mail: gummijonss@simnet.is
Til baka