Um tónlistina...Gummi Jóns

Sólóplatan Jaml.

Þetta er tíu laga plata, númer tvö í röðinni og kemur til með að heita "Jaml" í flúkti við trílógíuna mína (Japl, Jaml og Fuður!!!). Rosalega sniðugt! (eða hitt þó heldur?) og eins og vanalega fer ég alltaf erfiðustu leiðina. En ef og þegar það virkar - verður það helmingi ánægjulegra fyrir vikið.

Þetta er búið að vera býsna lærdómsríkur tími að undanförnu. Ég keypti mér upptökuforrit í fyrra sem eiginlega einokar orðið upptökuferlið í bransanum í dag: Fag-tól eða Pro-tools eins og það kallast upp á enskuna.
Ég er búinn að vera upptökustjóri til margra ára og hef vanalega másað yfir öxlina á gjörvilegum upptökumönnum (við misjafnar undirtektir þeirra) en nú ákvað ég að gera þetta allt sjálfur og þó fyrr hafi verið en ég mun þó fá mér færari menn til að hljóðblanda gripinn og hljómjafna á endasprettinum.

Svona lítur það út. Svo er spurning hvort eitthvað sé nú varið í þetta? En eins og alltaf þegar ég er að klára plötu þá finnst mér hún innihalda einhverja þá langflottustu tónlist sem búin hefur verið til og er þess fullviss að íbúar Íslenska lýðveldisins falli í stafi um hvert annað, þvert og endilangt og loksins, loksins verði ég heimsfrægur á Íslandi........
........en innst inni við heilaberkinn, aftarlega, hvíslar lævís rödd, hokin af reynslu og vonbrigðum undanfarna áratuga, að búast ekki við neinu og í besta falli ekki eins slæmri útreið og síðast...
EN! ég hlusta ekkert á svona væl og niðurrif - þetta er og verður frábær plata!!!

Hér fyrir neða má sjá fréttatilkynningu sem var send til fjölmiðla:

Útgáfufyrirtækið Gustuk tilkynnir útgáfudag plötunnar “Jaml” með

Gumma Jóns, aðallagasmið og gítarleikara Sálarinnar hans jóns míns, mánudaginn 12. júní.

Platan"Jaml" er önnur platan í trílógíu hans er hófst með disknum "Japl" sem kom út árið 2004, við prýðilegar undirtektir.

"Jaml" inniheldur 10 glæný lög og texta eftir Gumma sem í þetta skiptið sér sjálfur um allann hljóðfæraslátt, söng og upptökur, fyrir utan að í einu lagana, “Ég trúi...” syngur Magnús Þór Sigmundsson dúett með Gumma af sinni alkunnu snilld.

Undanfarna daga og vikur hafa lögin “Fyrirgefðu” og "Í orðastað vinar" af nýja disknum hlotið töluverða spilun í útvarpsstöðvum landsmanna og hlotið frábærar viðtökur.

Annars má lýsa plötunni "Jaml" sem lágstemmdi og persónulegri tónlist, ofin í margslunginn hljóðheim og auðvitað afar melódísk að hætti höfundar.

Gummi Jóns

 

 

 




GUMMI JÓNS – JAML

Lög og textar – GJ
Söngur, hljóðfæraleikur, forritun, útsetningar, upptaka og upptökustjórn – GJ
Hljóðblöndun – Óskar Páll Sveinsson
Snurfus og frágangur í fag-tólum – Haffi Tempó og Hrannar Ingimundarson
Upptökur og hljóðblöndun fór fram í ársbyrjun 2006, í heimahúsum, hist og her.
Sérlegur gestasöngurvari í laginu “Ég trúi…” – Magnús Þór Sigmundsson
Ljósmyndir – Jónatan Grétarsson
Hönnun umslags – Arnar Geir Ómarsson



 
Viltu eignast diskinn? - Hérna færðu hann keyptan
 
Hérna er hægt að kaupa plötuna á Skífan.is - Smella -
 
Hérna er hægt að kaupa lagið á Tónlist.is - Smella -
 
 
Lögin á plötunni - umsagnir um lögin - textarnir - hljóðskrár
 
1) Fyrirgefðu Spila lagið
2) Í orðastað vinar Spila lagið
3) Þín vegna skal ég muna það Spila lagið
4) Ég trúi... Spila lagið
5) Flóttinn frá Íslandi Spila lagið
6)Skilaboð send
Spila lagið
7) Þau áttu sér líf (2.hluti)
Spila lagið
8) Fjöllin standa að eilífu
Spila lagið
9) Ást í meinum
Spila lagið
10) Einungis þú
Spila lagið

GummiJóns



E-mail:
gummijonss@simnet.is

Loka glugga


Næstu tónleikar

  Auglýst síðar...


.