Um tónlistina...

Sólóplatan Fuđur.

Síđasti hluti ţríleiksins, Japl, Jaml og Fuđur hefur komiđ sér ţćgilega fyrir á hillum verslanna og í vitjum viljugra unnenda. Öll lög og textar eru glćný eftir undirritađan og hefur lagiđ “Ilmurinn”, sem ég syng ásamt Birni Jörundi og “...nema ađ kraftaverk komi í ljós”, fengiđ ágćtis spilun í viđtćkjum landsmanna og er einungis forsmekkurinn af ţví sem fyrir er. Ţađ er alltaf stór stund lífi hvers draumóramanns er hann handfjatlar slíka afurđ. Eftir margra mánađa hugarangur, spenning, gleđiköst, peningaleysi, fullkomnunaráráttu, mikilmennskubrjálćđi og einstaka kćruleysissprautu, er ég bara sćmilega sáttur međ útkomuna.

Gummi JónsFuđur er frábrugđin hinum plötunum tveimur ađ ţví leytinu til, ađ hún einkennist af miklum gestagangi. Til dćmis syngja međ mér dúetta á plötunni áđurnefndur; Björn Jörundur, hinn rámi siglingakappi og prímus mótor Nýdanskar, Hara systurnar nýfrćgu sem eru líka áberandi í bakröddum og síđast en ekki síst, götuskáldiđ og heimspekingurinn nýslegni, Jójó (sem reddađi mér fyrsta gítardjobbinu í borg óttans).

Líka eru međ mér hellingur af frábćrum hljóđfćraleikurum, leiknir sem lćrđir, eins og Jakop Magnússon, Sigurgeir Sigmunds, Jón Ólafs, Dan Cassidy, Hjörtur Howser, Birgir Bragason, Pétur Grétarsson, Ingi Skúlason, Benedikt Brynleyfsson og margir fleiri. Meira ađ segja karl fađir minn strömmar nokkra hljóma og gömlu félagar mínir úr Janus leggja hönd á plóg. Ég ákvađ 2006 eftir ađ ég klárađi Jamliđ, ađ láta töluverđan tíma líđa áđur en ég tćkist ađ lokum á viđ Fuđriđ, enda alltaf strembiđ ađ semja, spila og taka upp heila plötu á nokkrum vikum (svo ég tali ekki um hvađ ţađ er oft einmannalegt).

Ţađ stóđ líka til ađ gera nýja Sálar-plötu áriđ 2007. En er hćtt var viđ ţá hugmynd snögglega, ákvađ ég bara ađ skella mér í ađ klára ţríleikinn (ţó ađ ég sé ekki upprifinn ađ lenda í miđjum jólaslagnum međ útgáfudaginn). En ţađ bjargar miklu ađ eiga samskipti viđ ţetta frábćra listafólk sem leggur mér liđ á disknum – jú, ţađ segir fátt af einum.

 

 

 




GUMMI JÓNS – FUĐUR

Lög og textar – GJ
Söngur, hljóðfæraleikur, forritun, útsetningar, upptaka og upptökustjórn (nema trommur og bassi - Baldvin A. Baldvinsson) – GJ
Hljóðblöndun – Óskar Páll Sveinsson
Hljómjöfnun - Axel Árnason.
Snurfus og frágangur í fag-tólum – Daði Georgsson
Hljóðritun átti sér stað sumarið 2007 í Sýrlandi,Eyranu og í hinum ýmsu heimahúsum.

Ljósmyndir – Jónatan Grétarsson
Hönnun umslags – Arnar Geir Ómarsson



 
Viltu eignast diskinn? - Hérna færðu hann keyptan
 
Hérna er hægt að kaupa plötuna á Skífan.is - Smella -
 
Hérna er hægt að kaupa plötuna á Tónlist.is - Smella -
 
 
Lögin á plötunni - umsagnir um lögin - textarnir - hljóđskrár
 
1) Leyfđu mér Spila lagiđ
2) Nema ađ kraftaverk komi í ljós Spila lagiđ
3) Ilmurinn Spila lagiđ
4) Ég hef engu gleymt Spila lagiđ
5) Innst inni veit ég allt Spila lagiđ
6)Hjartađ slćr afturábak
Spila lagiđ
7) Syngdu međ mér lag
Spila lagiđ
8) Álög
Spila lagiđ
9) Eins og lauf (í sterkum vindi)
Spila lagiđ
10) Ég um ţig frá mér til ţín
Spila lagiđ

GummiJóns

E-mail:
gummijonss@simnet.is


Til baka


Nćstu tónleikar

  Auglýst síđar...


.