Zebra
Zebradúettinn varð til svona smá saman upp úr engu hjá okkur Jens Hanssyni.
Einhvern tímann á árinu ´93 ´94 þegar Sálin var í einu af sínu lengri fríum, fórum við Jens að leika okkur með hljóðsarpa (samplera) og álíkar græjur.
Við hittumst reglulega heima hjá Jenna og dunduðum okkur í því að setja saman takta og umbreyta hljóðum á ýmsan hátt okkur til ánægju.
Allt í einu kom að þeim tímapunkti, er við spurðum okkur hvort við ættum ekki að gera eitthvað við þetta -hrökkva eða stökkva. Við ákváðum að gera plötu og fengum
díl hjá útgáfufyrirtækinu Rymur sem Rafn Jónsson trommari og fyrrum Sálarmeðlimur átti og rak.
Við fengum að vera í Hljóðhamri, stúdióinu hans á nóttunni og öðrum ókristilegum tímum, til að taka upp 9 laga plötu. Eins og fram hefur komið var hljóðheimurinn tæknivæddur og tilraunakenndur en við blönduðum saman við hann gítar,hljómborð, saxafónn og söng.
Lög og textar, sem voru á ensku, voru eftir mig og Jens og söng ég öll lögin. Eitt laganna, “ Paradise ” hafði áður ratað á fyrstu einherjaplötu Stebba Hilmars, “Líf” og hét þar “Skýjaborg”. það var mjög gaman að gera þessa músik og lærði ég margt og mikið á þessu brölti, sem nýttist mér síðar t.d. er Sálin gerði tvíbökurnar “Annar máni” og “Logandi ljós”.
Við lögðum líka mikið upp úr umslaginu því við fengum Gabrielu Friðriksdóttir myndlistarkonu (sem var nemi þá) til að hanna skúlptúra um hvert lag sem fylgdu síðan ljósmyndaðir með í plötuumslaginu.
Tvö stórskrítin myndbönd gerðum við líka og síðan fylgdum við plötunni eftir með nokkrum tónleikum, þar sem við Jenni
spiluðum og sungum við undirleik af segulbandi og videógjörningi.
Japis sá um framleiðslu og dreifingu á Zebra-plötunni og klúðraðist það meistaralega hjá þeim, því diskurinn tafðist um mánuð eða meira og kom ekki út fyrr en 20. desember og seldist því takmarkað, og bjuggust menn þó ekki við
mikilli sölu vegna þess hversu tilraunakennd platan var.
það var því sárabót að við fengum mjög góða dóma í blöðunum, einhverja þá bestu sem ég hef fengið, held ég. En þetta var mikið ævintýri, lærdómsríkt og alltaf gaman að búa til tónlist með Jenna.
Lög Zebra
1) Invasion of the braineater - Spila lagiđ
(Lag og texti Guðmundur Jónsson)
2) Waiting for mercy - Spila lagiđ
(Lag og texti Guðmundur Jónsson)
3) Paradise - Spila lagiđ (Lag og texti Guðmundur Jónsson)
4) Armchair traveling - Spila lagiđ
(Guðmundur Jónsson og Jens Hansson)
5) The jigsaw takes it´s shape - Spila lagiđ
(Lag og texti Guðmundur Jónsson)
6) Black Fiction - Spila lagiđ
(Lag og texti Jens Hansson)
7) Sounding the seabed of my soul - Spila lagiđ
(Lag og texti Guðmundur Jónsson)
8) Overload in the overhead - Spila lagiđ (Lag og texti Guðmundur Jónsson)
9) Beautiful thing - Spila lagiđ
(Jens Hansson / Guđmundur Jónsson)
Zebra
Upptökur fóru fram í hljóðhamri og Hljóðsmiðjunni
Upptaka,upptökustjórn,útsetningar og flutningur: Zebra
Myndverk: Gabríella
Hönnun: Jakob í Sjöunda Himni
Ljósmyndir: Magnús Blöndal
Yfirfærsla of hljóðvinnsla: David Yorath (Surrey Sound)
|