<%@LANGUAGE="VBSCRIPT" CODEPAGE="1252"%> Gummijónss.is - Tónlist - Saga hljómsveitarinnar Pelican
Saga Pelican

Pelican

Pelican er eitt af stóru nöfnunum á Íslandi, hljómsveit sem gerði garðinn frægan á áttunda áratugnum. þegar ég var ormur voru Pétur Kristjáns og félagar miklar hetjur í mínum augum, bæði í því bandi og ekki síst í sveitinni Paradís (sem Nikulás Róbertsson liðsmaður í Kikk, var hljómborðsleikari í).

Sérstaklega var Björgvin Gíslason í miklu uppáhaldi - einn af betri gítarhetjum Íslands. Pétur Kristjáns hafði árið ´92 sungið með okkur í Sálinni lagið "Krókinn" við miklar vinsældir og það var kominn hugur í gamla swinginn aftur. Hann hafði hóað saman þeim Bjögga, Ásgeiri Óskars, trommur og Jóni Ólafs, bassaleikara.

Fyrst ætlaði Pétur að gera sólóplötu en ákvað að breyta því í Pelican-comback. Ég var nú með efasemdir um það því ósjálfrátt tók ég sæti Ómars Óskarssonar, þess frábæra lagasmiðs og gítarleikara. það var því með súr-sætri tilfinningu sem ég mætti á fyrstu æfingu með Pelican, ´93 árgerðin. Ég fékk þó fljótlega gæsahúð og alles þegar við byrjuðum á fyrsta laginu, "Á sprengisandi".

Að sjá Bjögga Gísla brosa hringinn er við byrjuðum að tvinna saman gítarlínunum, yljaði manni um hjartaræturnar. Sálin var á þessum tímapunkti komin í langt frí og síðustu misseri hjá okkur höfðu verið mjög erfið. það hafði átt sér stað hálfgerð hallabylting og ég kominn út í horn, enn eitt skiptið.

Ég var orðin langþreyttur á hljómsveitarskylmingum, því fannst mér freistandi að verða bara óbreyttur liðsmaður og nema af fótskör meistaranna. Markið var sett hátt og farið í að gera plötu fyrir sumarið. Allir vorum við uppveðraðir og enn og aftur lét undirritaður spilagleðina bera sig ofurliði þannig að það endaði með því að ég samdi flest löginn og textana (alltof mörg lög – less is more!).

Platan kom svo út og fékk slæma dóma, sérstaklega fyrir það að við skyldum hrófla við gömlu goðsögninni og að ég skyldi yfir höfuð taka þátt í þessu ævintýri.

Spilamennskan varð líka freka endasleppt en það voru samt nokkrir tónleikar þarna um sumarið sem tókust alveg frábærlega hjá okkur, -með þeim betri sem ég hef komið nálægt og lifa þeir góðu lífi í minningunni.

Við Björgvin og Ásgeir áttu svo eftir að spila saman eftirminnilega aftur, er Sálin hljóðritaði 12. Ágúst ´99. Pétur stígur hinsvegar reglulega með mér á stokk við hin ótrúlegustu tækifæri, og höfum við alltaf jafn gaman að.



Lög Pelican


1)  Pelican - Spila lagiđ
(Lag: Björgvin Gíslason)
2) Ástin er - Skoða textann - Spila lagiđ
(Lag og texti: Guðmundur Jónsson)
3) Leyfðu mér að sjá - Spila lagiđ
(Lag og texti: Guðmundur Jónsson)
4) Engum líkur - Spila lagiđ
(Lag: Björgvin Gíslason. Texti: Kristján Frímann og Sólon Íslandus)
5) Gefðu grið - Skoða textann - Spila lagiđ
(Lag og texti: Guðmundur Jónsson)
6) Tjáðu mér - Skoða textann - Spila lagiđ
(Lag og texti: Guðmundur Jónsson)
7) Hvað veit ég - Spila lagiđ
(Lag: Jón Ólafsson Texti: Guðmundur Jónsson)
8) Minningar - Spila lagiđ
(Lag og texti: Guðmundur Jónsson)
9) Á ystu nöf - Spila lagiđ
(Lag og texti: Guðmundur Jónsson)
10) Í vígahug - Skoða textann - Spila lagiđ
(Lag og texti: Guðmundur Jónsson)
11) Beggja hagur - Spila lagiđ
(Lag: Ásgeir Óskarsson Texti: Sverrir Stormsker)
12) Ég var ekki ég - Spila lagiđ
(Lag: Björgvin Gíslason. Texti: Kristján Frímann )
13) Sofa í minn haus - Spila lagiđ
(Lag og texti: Guðmundur Jónsson)
14) Þreyttur og þunnur - Spila lagiđ
(Lag og texti: Björgvin Gíslason)






Pelican


Pétur Kristjánsson: Söngur og raddir
Björgvin Gíslason: Gítar,slide gítar,sítar og munn vá vá
Jón Ólafsson: Bassi og raddir
Ásgeir Óskarsson: Trommur slagverk og raddir:
Guðmundur Jónsson: Gítar,vá vá gítar,dobro og raddir.

Gestasöngur: Sigríður Beinteinsdóttir í í laginu Tjáðu mér.

Upptökur fóru fram í Sýrlandi,Hljóðrita og Grjótnámunni í Febrúar,Mars og Apríl '93.

Upptökumenn: Óskar Páll Sveinsson,Gunnar Smári Helgason,Nick Cathcart-Jones,Arnþór Örlygsson,Sveinn Kjartansson og Jóhann Ásmundsson.

Hljóðblöndun: Óskar Páll Sveinsson nema í "vígahug" Nick Cathcart-Jones.

Útsetningar og upptökustjórn: Pelican