Ágrip af poppsögu minni
![]() Ég fæddist rennblautur og í svitakófi í Hafnarfirði þann 11.10.1962 (allt fullt í bænum!) og bjó í Reykjavík þangað til um 5 ára aldur, að ég flutti til Skagastrandar ásamt fjölskyldu. þar ólst ég upp í frið og spekt (allt annað eru ýkjur og rógburður!) og snemma hneigðist hugur minn til tónlistar (og efnilegur knattspyrnuferill laut í lægra haldið - je right!!!) sem varð á skammri stundu algjör þráhyggja og er enn. 13 ára gamall náði ég F-gripinu ógurlega á gítar og þá var ekki aftur snúið - Íslenska lýðveldið hafði eignast nýjan gítareiganda. Fyrsta hljómsveitin mín, sem ég stofnaði um fermingu ásamt æskuvinum mínum hét "Hörmung", og eins og heitið ber með sér, þá var sjálfsálitið ekki að flækjast fyrir okkur. Síðan komu bílskúrsböndin á færibandi; Prelódía, Sýróp, og Janus sem ég var nú einna lengst í og spilaði mín fyrstu gigg í Húnavatnssýslu fyrir kaupi (alltaf soldið stór stund það.!). Sautján ára flutti ég á mölina og ætlaði mér að verða tónmenntakennari, en guggnaði á því eftir nokkurt bras og ..... Meira um þetta
|